'Hrært' skyr súrnar!

Úr kvöldfréttum Stöðvar 2:

"Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þetta í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

„Fyrir mér er það augljóst að þeir sem voru hér á skrifstofunni og gegndu æðstu embættisstörfum höfðu vitneskju að styrkir höfðu borist. Það sem máli skipti hinsvegar er ekki þetta heldur hitt. Hver tekur ákvörðun um færa þær upphæðir í bækur flokksins," sagði Bjarni.

„Ég tel að báðir framkvæmdastjórarnir, Kjartan sem var þá að ljúka störfum og Andri sem var að hefja störf, hafi haft vitneskju eftir að styrkurinn kom í hús."

Já, Bjarni það er alveg fráleitt að draga nafn Kjartans inn í þetta mútur FL-REI-Sjálftökuflokksmál. Þú hlýtur að hafa átt við Kjartan Gunnarsson fráfarandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflaksins.

Ef þú ert annars hættur að botna í þessu skaltu bara lappa inn á stöð og biðja einhvern löggumann kíkja á þetta fyrir þig. Það mundi kallast eins og Sjálfstæðismenn segja mikið í dag: Að ganga hreint til verks!


mbl.is Fráleitt að draga nafn Kjartans inn í atburðarásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Bara smá ábending - Þórður -

ég veit að þú ert orðljótur og að þú tjáir þig með uppnefnum og útúrsnúningum -

en ég er ekki aðili að því framferði þínu.

ÁSKORUN TIL SJÁLFSTÆÐISMANNA TÖKUM HÖNDUM SAMAN OG GREIÐUM HVERT UM SIG    KR. 5.000.-     Í STYRKTARMANNAKERFIÐ - TIL VIÐBÓTAR ÞVÍ SEM VIÐ GREIÐUM VENJULEGA. LÍKA ÞIÐ SEM ERUÐ EKKI INNI Í STYRKTARMANNAKERFINU NÚ ÞEGAR.10.000 MANNS - 50 MILLJÓNIR - MÁLIÐ LEYST.20.000 MANNS - 100 MILLJÓNIR - OG ALLT Í GÓÐUM GÍR.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 13.4.2009 kl. 07:30

2 Smámynd: Þórður Runólfsson

Að skila fénu lætur ekki glæpinn hverfa. Og til hvers að skila fénu ef enginn var glæpurinn?

Þórður Runólfsson, 13.4.2009 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband