Stöð2 missti tökin!

Það sem átti að verða flott umgjörð um þáttinn varð að frábærri umgjörð um lok ársins 2008, Ár Hryllingsins.

Lögreglan tók völdin af Stöð2 og hleypti mótmælunum upp. Líklega er hún ekki starfi sínu vaxinn.

 


mbl.is Mótmælin áttu að vera friðsamleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búist við kröftugri mótmælum! Ungmenni hreinsa út.

Sigurjón M. Egilsson seigir: 

http:eyjan.is/goto/sme/

"Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðins, held hann heiti Paul Thompson, fundaði með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í dag. Fulltrúinn sagði stöðu Íslendinga með því versta, ef ekki það versta, sem hann hefur séð. Og hefur hann þó áralanga reynslu af störfum meðal þjóða í fjárhagsvanda.Hann mun hafa sagt ótrúlegt að við ætlum að reka ríkissjóð með 150 milljarða króna halla. Hann sagði enga vilja lána okkur til að fjármagna hallann. Nú séum við með peninga frá Aþjóðagjaldeyrissjóðnum og helstu vinaþjóðum. Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun hafa sagt að ekki væri mögulegt að halda að við getum fjármagnað umframkeyrsluna með ófengnu lánsfé.Niðurstaðan er þessi. Staða okkar er enn að versna. Á næstu vikum mun meiri vandi koma í ljós. Við erum að einangrast þar sem aðrir vilja ekki lána okkur peninga. Það mun láta nærri að við verðum að skera enn frekar niður. Þess vegna um 100 milljarðar. Átakatími verður strax eftir áramót."
mbl.is Fóru inn í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftannúr kreistingar fara bakdyra meginn!

Fólk grætur við hjálparstofnannir. Óbreytt ástand. þjófarnir og landráðamennirnir eru ennþá á sínum stöðum. Ríkisstjórnin framleiðir nýöreiga á færibandi, nú eru bændurnir næstir sem sáu aldrei til sólar í góðærinu. Flokkurinn fyrst, fólkið svo.

Fólk talar um nýársbyltinguna.

 


mbl.is Ríkisstjórnin inn um bakdyrnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvít þvottur!!!

Það er þörf á alþvott en við fáum skítaþvott. Dulunni er dýft í gruggugt vatnið og fólk á að halda að upp úr komi hún hrein. Hrokakíkir!

Á svo að láta einn besta umhverfisráðherra sem starfað hefur fjúka. Skilur nokkur í þessu liði.

Ég mun aldrei framar kasta mínu atkvæði á samfylkinguna. 


mbl.is Uppstokkun fyrir áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttlæti Samfylkingarinnar! Hrokafulla Solla.

Réttlæti Samfylkingarinnar er að dreifa byrðunum niður á við til gamalmenna og þeirra sem minna mega sín.

Aumingjans fólkið, sem stóð að góðærisveislunni með stuðningi ríkisstjórnar þarf ekki að bera hinar þungu byrðar ásamt hinum.

Ég mun ekki kjósa Samfylkingu aftur.


mbl.is Hátekjuskattur bara táknrænn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fríar skólamáltíðir!

Sveitafélögin þurfa að tryggja fríar skólamáltíðir til að tryggja jafnræði barnanna til næringar og svöngum börnum mat.  

Eða hvað finnst ykkur um að mæta svöng í skólann og þurfa svo að horfa á hina krakkana gæða sér á vel útilátinni máltíð og vera enn svangri en þegar þú mættir í skólann um morguninn.

Hvernig fer vannæring með börn?

 


mbl.is Fólk á ekki fyrir mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvöru mótmælendur!

Mikið er ég ánægður með þetta fólk sem mótmælir skrílnum sem lýgur að þjóðinni og kallar hana skríl.

En að bíta er óafsakanlegt þó að skríllinn ljúgi.


mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að berjast fyrir hugsjónum.

Hvar og hverjar eru hugsjónir ykkar Íslendingar? Af hverju eru þið ekki að berjast fyrir hugsjónum ykkar? Af hverju látið þið 20-30 manna hóp taka hitan og þungan af baráttunni gegn spillingunni.

Af hverju er þessi þrælslund í ykkur Íslendingar? Við hvað eru þið hrædd? Eru þið hrædd við sjálfan ykkur?

Stjórnvöld voru ekki hrædd við að skella á ykkur gjaldþrotum, uppsögnum, lygum, spillingu og hörmungum.

Ég hvet ykkur til að taka upp kyndilinn og þramma gegn spillingunni með hugsjónir um betra Ísland að vopni.


mbl.is Vilja ríkisstjórnina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gúrkutíð?

Bruðl er slæmt.

Að setja þjóðfélag nánast í gjaldþrot eru landráð!


mbl.is Forsetaembættið mótmælir frétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð Geirs og Ingibjargar.

Ég kalla eftir ábyrgð Geirs og Ingibjargar. Þau hafa greinilega ekki talið þörf á því að upplýsa ráðherra sína um stöðu mála og hversu grafalvarleg staðan væri að mati seðlabankastjóra.
mbl.is Hitti Davíð ekki í tæpt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband