31.10.2007 | 15:41
Hin nýja peningalykt
Ágætu Reykvíkingar
Vegna þess að ekki fellur nógu hratt á silfri ykkar, og ekki er nóg brennisteinsfýla í Reykjavík í austanátt, og brennisteinsvetni fer ekki yfir hættumörk nema einstaka daga. Þá ætlar Orkuveita Reykjavíkur að bæta við einni háhitavirkjuninni í Henglinum, fyrir álver í Helguvík. Og að sjálfsögðu að slátra einni náttúruperlunni í leiðinni.
Þetta allt er í boði Orkuveitu Reykjavíkur - Þetta geta nú ekki allir boðið!!!!
Ef þú villt ekki taka þessu tilboði getur þú farið inn á tengilin fyrir neðan og afþakkað tilboðið sem rennur út 9 nóvember.
Hér dugar ekki að teygja lopann
Með kveðju og vonandi ekki brennisteinsfýlu - eða er brennisteinsfýlan hin nýja penninga fýla ????????
Enn svona án gríns - spáum í þetta
Meta þarf hvort setja eigi hreinsibúnað á virkjanir á Hellisheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hlekkurinn hjá þér er boginn, þessi ætti að virka
http://hengill.nu
gummih, 31.10.2007 kl. 17:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.